Lýsing
WOOOF high-energy er heilnæmt pressað fóður fyrir hunda með mikla orkuþörf.
- Sérlega auðmelt
- Stuðlar að heilbrigðum og gljáandi feldi
- Aukið prótein og fitu innihald
- Hveiti (glúten) laust
- Framleitt eingöngu úr náttúrulegum hráefnum
- Inniheldur engin lyktar-, litar- eða bragðefni
WOOOF high-energy hentar hundum með mikla orkuþörf, svo sem veiðihundum eða hvolpafullum tíkum. Einnig hentar high-energy fóðrið vel hundum sem þurfa að þyngjast.
Lykillinn að góðu fóðri eru náttúruleg hráefni. Að sjálfsögðu vilt þú vita nákvæmlega hvað hundurinn þinn er að borða! Heilnæm og þekkt hráefni sem þú getur treyst. Vítamín og steinefni skipta líka miklu máli.
Öll hráefni sem notuð eru í WOOOF fóðrið eru valin af kostgæfni. Þetta stuðlar að heilbrigði, vellíðan og langlífi hundsins þíns. Mikilvægt er að hráefnin sem notuð eru séu náttúruleg en það skiptir einnig gífurlega miklu máli að hundurinn þinn geti nýtt öll næringarefnin í fóðrinu. Þess vegna er ofuráhersla lögð á fóðrið sé auðmelt. Meltanleiki fóðursins þarf að vera góður svo að næringarefnin í fóðrinu skili sér og nýtist hundinum.
Hvers vegna ættir þú að velja pressaða bita?
Fóður sem framleitt er í pressuðum bitum þarfnast minni orkunotkunar og eru skaðleg áhrif framleiðslunnar á umhverfið því minni. Þar að auki gerir þessi framleiðsluaðferð það að verkum að hráefnin sem notuð eru halda næringargildi sínu þar sem bitunum er haldið undir 100°C í gegnum allt framleiðsluferlið.
Með þessum hætti er tryggt að öll vítamín, steinefni og önnur efni haldist í fóðrinu. Pressaðir bitar eru auðmeltanlegir þar sem þeir leysast upp í maganum á mun skemmri tíma en fóður sem framleitt er á hefðbundinn hátt.
Kostir WOOOF hundafóðursins eru margir, bæði fyrir hundinn þinn og fyrir veskið þitt!
- Sérlega auðmelt
- Gott fyrir þroska hundsins
- Aukin mótspyrna við pestum
- Fallegur gljáandi feldur
- Hveiti (glúten) laust
- Inniheldur engin lyktar-, litar- eða bragðefni
Hráefni
Nautakjöt / (dýraprótein) – gelatínað maís, alifugla fita, laxa olía, inulin, L-karnitín, taurín.