Lýsing
- WOOOF puppy er náttúrulegt pressað fóður fyrir hunda sem eru að þroskast.
- Tryggir góðan þroska og vöxt hvolpsins þíns
- Hveiti (glúten) laust
- Sérlega auðmelt
- Framleitt eingöngu úr náttúrulegum hráefnum
- Inniheldur engin lyktar-, litar- eða bragðefni
- WOOOF puppy fóðrið tryggir jafnan vöxt. Þessi jafni vöxtur skilar sér í betri þroska beina og verður til þess að liðamót og sinar hvolpsins þroskast á jafnari hraða og í samræmi við þroska og vöxt beina. Þú vilt bara það besta fyrir hvolpinn þinn, ekki satt?
Lykillinn að góðu fóðri eru náttúruleg hráefni. Að sjálfsögðu vilt þú vita nákvæmlega hvað hundurinn þinn er að borða! Heilnæm og þekkt hráefni sem þú getur treyst. Vítamín og steinefni skipta líka miklu máli.
Öll hráefni sem notuð eru í WOOOF fóðrið eru valin af kostgæfni. Þetta stuðlar að heilbrigði, vellíðan og langlífi hundsins þíns. Mikilvægt er að hráefnin sem notuð eru séu náttúruleg en það skiptir einnig gífurlega miklu máli að hundurinn þinn geti nýtt öll næringarefnin í fóðrinu. Þess vegna er ofuráhersla lögð á fóðrið sé auðmelt. Meltanleiki fóðursins þarf að vera góður svo að næringarefnin í fóðrinu skili sér og nýtist hundinum.
Hvers vegna ættir þú að velja pressaða bita?
Fóður sem framleitt er í pressuðum bitum þarfnast minni orkunotkunar og eru skaðleg áhrif framleiðslunnar á umhverfið því minni. Þar að auki gerir þessi framleiðsluaðferð það að verkum að hráefnin sem notuð eru halda næringargildi sínu þar sem bitunum er haldið undir 100°C í gegnum allt framleiðsluferlið.
Með þessum hætti er tryggt að öll vítamín, steinefni og önnur efni haldist í fóðrinu. Pressaðir bitar eru auðmeltanlegir þar sem þeir leysast upp í maganum á mun skemmri tíma en fóður sem framleitt er á hefðbundinn hátt.
Kostir WOOOF hundafóðursins eru margir, bæði fyrir hundinn þinn og fyrir veskið þitt!
- Sérlega auðmelt
- Gott fyrir þroska hundsins
- Aukin mótspyrna við pestum
- Fallegur gljáandi feldur
- Hveiti (glúten) laust
- Inniheldur engin lyktar-, litar- eða bragðefni
Innihaldsefni:
Nautakjöt/(dýraprótein) gerjaður maís, alifugla fita, alifuglamjöl, línufræ, laxaolía, inúlín, L-karnitín, taurín.